Akstursþjónusta fatlaðs fólks og aldraðra
Um okkur
Strætó bs. sér um framkvæmd sameiginlegrar akstursþjónustu fatlaðs fólks og aldraðra á höfuðborgarsvæðinu.
Umsókn um akstursþjónustu fatlaðs fólks og aldraðra skal berast til þjónustumiðstöðvar/félagsþjónustu í því sveitarfélagi sem umsækjandi býr.
Farþega er heimilt að hafa með sér annan farþega. Fargjaldið gjaldfærist á skráðan farþega akstursþjónustunnar.
Geti farþegi ekki ferðast einsamall að mati viðkomandi sveitarfélags, skal aðstoðarmaður fylgja honum. Viðkomandi sveitafélag greiðir laun og annan kostnað aðstoðarmanns. Aðstoðarmaður greiðir ekki fargjald.
Akstursþjónusta Strætó bs.
Hvernig sæki þú um akstursþjónustu?
Hjá félagsráðgjafanum þínum.
Ef þú býrð í Reykjavík sæki þú um hjá þjónustumiðstöðinni í þínu hverfi.
Ef þú býrð í Hafnarfirði, Garðabæ, Mosfellsbæ eða á Seltjarnarnesi sækir þú um hjá félagsþjónustunum þar.
Hvernig panta ég ferð ?
1. Hringir í síma 540 2700
Síminn hjá Strætó er opinn:
Frá klukkan 7:00 – 24:00 mánudaga til föstudaga
Frá klukkan 7:30 – 24:00 á laugardögum
Frá klukkan 9:30 – 24:00 á sunnudögum
2. Pantar á heimasíðu Akstursþjónustunar www.blablabla.is
3. Pantar með tölvu-pósti á pontun@straeto.is.
Tölvupósturinn er góður til að panta fastar ferðir sem þú ferð oft í viku til dæmis í vinnu eða skóla.
Tölvupósturinn er líka góður ef pantaðar eru ferðir fyrir marga í einu.
Um hvað getur þú valið þegar þú pantar ferð?
1. Þú getur látið vita hvenær bíllinn á að koma og sækja þig.
2. Þú getur látið vita hvenær þú þarf að vera kominn þangað sem þú ert að fara til dæmis í vinnu til læknis eða í sjúkraþjálfun
Dæmi um pöntun:
Sigga notar Akstursþjónustu Strætó til að komast í og úr vinnu.
Sigga vinnur alla virka daga frá klukkan 8:00-16:00.
Til að vera komin í vinnuna á réttum tíma pantar hún ferðina eftir mætingartímaklukkan 8:00.
Ferðina heim pantar hún eftir brottfarartíma klukkan 16:00.
Þú þarft að pantað ferð 2 klukkutímum áður en þú ætla að fara af stað.
Þú getur fengið SMS þegar 15 mínútur eru í að bíllinn kemur ef þú lætur vita um farsíma númerið þitt.
Hvenær get ég notað Akstursþjónustuna?
Þú getur notað Akstursþjónustuna á sama tíma og strætó gengur.
Þjónustutíminn er:
Frá klukkan 7:00 – 24:00 mánudaga til föstudaga
Frá klukkan 7:30 – 24:00 á laugardögum
Frá klukkan 9:30 – 24:00 á sunnudögum
Það er mikilvægt að hringja og láta vita ef þú hættir við ferð
Þú þarft að afpanta ferðina 2 tímum áður en þú ætlar að fara í ferðina.
Ef þú lætur ekki vita þá detta allar aðrar ferðir þann daginn niður.
Ef þú afpantar ferðina of seint þá þarftu að að borga fyrir ferðina.
Hvernig er ferðin mín?
Bílstjórinn getur aðstoðað þig frá innganginum í húsinu þar sem ferðin byrjar og í innganginn í húsið þar sem ferðin endar.
Oftast eru fleiri en einn farþegi í bílnum í einu.
Hámarkstíminn í bílnum er 60 mínútur.
Þú getur þurft að bíða eftir bílnum í 10 mínútur frá pöntuðum tíma.
Gott að muna:
Það er gott að vera tilbúinn við innganginn þegar bílinn á að koma.
Ef þú getur ekki ferðast einn þá þarf aðstoðarmaður að koma með þér í bílinn.
Félags-ráðgjafinn þinn þarf að láta Strætó vita af þessu.
Ef þú getur ekki ferðast með öðrum, þá þarf félagsráðgjafinn þinn að láta Strætó vita af því.
Ef þú átt barn sem er yngra en 6 ára þá getur það komið með þér án þess að borga
Þú getur haft farþega með þér. Það þarftu að panta sérstaklega og þú borgar fyrir farþegann.
Þegar þú ferð til læknis geturðu hringt eftir bílnum til baka þegar þú ert búin hjá lækninum.
Bílstjórinn á bara að sjá um að keyra þig . Hann má ekki hlaupa inn í búð eða fara í sendiferð fyrir þig.
Hvað kostar akstursþjónustan?
Þitt sveitarfélag ákveður hvað þú átt að borga fyrir hverja ferð.
Reikningur er sendur í heimabanka.
Þú getur beðið um að fá reikninginn sendan heim í pósti með því að hringja í síma 540 2700.
Þú getur líka beðið um að fá reikninginn sendan heim í pósti með því að senda tölvupóst á pontun@straeto.is.




