top of page
Afpantað beint 

Innskráning

Þar skráir notandi sig inn með tölvupóstfangi, lykilorði og smellir svo á “Log on“.

Í fyrsta skiptið sem farið er inn á vefsvæðið er boðið uppá að breyta lykilorði.
 

Skoða bókaðar ferðir

Þegar búið er að skrá sig inn birtast upplýsingar um ferðir dagsins og einnig er hægt að smella á “Ferðir síðar” til að skoða bókaðar ferðir næstu daga. Allar ferðir sem koma fram á yfirlitinu eru annað hvort með stöðuna “pöntuð” eða “afpöntuð
 

Afpanta ferðir

Í kerfinu er hægt að afpanta ferðir með tveggja tíma fyrirvara. Það er gert með því að smella á græna hnappinn „Pöntuð“ við það opnast aðvörunnar gluggi þar sem aðgerðin er endalega samþykkt og ferðin er afpöntuð.

Ekki er hægt að taka afpöntun til baka í kerfinu hana þarf að gera með því að hafa samband við þjónustuver Strætó bs.
 

Hvar er bíllinn?

Hægt er að smella á ferð til að fá nánari upplýsingar um ferðina. Þar koma fram tímasetningar, brottfararstaður, áfangastaður ásamt götukorti. Þegar búið er að úthluta akstursþjónustu bíl á ferðina er hægt að sjá staðsetningu bílsins á kortinu.

Vefþjónustuan er fyrir einstaklinga sem hafa rétt á akstursþjónustu hjá Strætó bs. Vefþjónustan veitir farþegum greiðan aðgang að upplýsingum um bókaðar ferðir, gerir þeim kleift að afbóka ferðir ásamt því að uppfæra persónuupplýsingar og setja inn frídaga.

Hægt er að opna vefþjónustuna í flestum tölvum og farsímum, nettenging þarf þó að vera til staðar.
Til að sækja um aðgang að vefþjónustunni þarf að smella á skráningu hér fyrir neðan.

© 2023 by Easy Wheels. Proudly created with Wix.com

  • Twitter Basic Black
  • Instagram Basic Black
  • Facebook Basic Black
  • YouTube Basic Black
bottom of page